

Ráðgjafi viðskiptakerfa – á sviði innkaupa, framleiðslu, birgðastýringar og verkbókhalds
Langar þig að vinna í öflugum hópi og með mörgum af helstu fyrirtækjum landsins
Vegna aukinna verkefna leitum við að kraftmikilli, úrræðagóðri og metnaðarfullri manneskju í starf ráðgjafa viðskiptakerfa. Við bjóðum uppá spennandi og gott vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum
Starfssvið
Viðkomandi mun taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að innleiðingu, ráðgjöf og rekstri á Dynamics 365 Finance & Operations.
Helstu verkefni
- Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
- Greining, hönnun og innleiðing ferla tengdum innkaupum, birgðastýringu, framleiðslu og verkbókhaldi
- Þátttaka í uppsetningu, prófunum og virkjun lausna hjá nýjum og núverandi viðskiptavinum
- Samstarf við þróunarteymi, aðra ráðgjafa og hugbúnaðarsérfræðinga
- Leita leiða til hagræðingar hjá viðskiptavinum með nýtingu á nýrri tækni eins og AI.
- Þjálfun og fræðsla fyrir notendur
Viðskiptalausnir
Innan Viðskiptalausna starfa yfir 140 sérfræðingar við verkefni tengd viðskiptakerfum og stafrænni umbreytingu íslenskra fyrirtækja. Við veitum framúrskarandi þjónustu sem er byggð á djúpri þekkingu á viðskiptakerfum og ferlum. Ráðgjafinn heyrir undir deildarstjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Dynamics 365 F&O.
Starfið gæti hentað þér ef þú:
- Hefur háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, fjármála, tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
- Hefur góða þekkingu á innkaupaferlum, birgðastýringu, framleiðsluferlum og verkbókhaldi fyrirtækja
- Hefur reynslu af þátttöku í innleiðingum viðskiptakerfa
- Ert fær(t) í skipulagningu og forgangsröðun verkefna
- Hefur góða samskiptafærni
- Ert drífandi og árangursmiðuð/aður/að
- Hefur reynslu af Dynamics 365 F&O eða Dynamics AX
- Hefur áhuga á að læra nýja hluti og starfa í kviku umhverfi tækninýjunga
- Hefur skilning á þörfum mismunandi atvinnugreina, viðskiptavina og notenda í tækni
English
Icelandic










