
TACTICA
TACTICA er upplýsingatæknifyrirtæki á íslenskum markaði í örum vexti sem sinnir fjölbreyttum störfum í tölvu- og vefþjónustu á fyrirtækjamarkaði.
Markmið TACTICA eru meðal annars að vera alhliða þjónustuaðili sinna viðskiptavina og veita þeim persónusniðna og góða þjónustu. TACTICA rekur hysingar.is sem er meðal stærstu hýsingaraðila á Íslandi og hefur verið leiðandi í þróun hugbúnaðarlausna.
Félagið var stofnað 2012 og höfum frá upphafi kappkostað að hafa vinalegt og gott starfsumhverfi.

Hópstjóri tölvuþjónustu
Ert þú lausnamiðaður einstaklingur sem vill stíga næsta skref og leiða hóp?
Við hjá Tactica leitum við að öflugum hópstjóra sem tekur að sér daglega forystu innan tölvudeildar. Þú vinnur náið með stjórnendum og samstarfsfólki að því að halda kerfunum okkar gangandi, leysa verkefni hratt og tryggja að viðskiptavinir fái framúrskarandi þjónustu.
Verkefni sem teymið leysir á hverjum degi getur staðið saman af:
- Uppsetningu, viðhaldi og bilanaleit í tölvum, netkerfum og jaðarbúnaði
- Stjórnun og umsjón á Microsoft 365, Azure AD, Exchange og öðrum skýjaþjónustum
- Uppsetningu og viðhaldi á Windows Server umhverfum og Active Directory
- Google Workspace umsjón og stuðningur
- Vettvangsþjónusta hjá viðskiptavinum á höfuðborgarsvæðinu
- Fjarþjónusta og úrræðaleit í síma og fjartengingu
- Netkerfi, eldveggir, Wi-Fi og allt sem þar á við
- Og öllu öðru sem tengist tæknimálum!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg verkstjórn, þú sérð um að aðstoða hópinn við að skipuleggja og forgangsraða verkefnum, fylgir eftir framvindu og tryggir að hlutirnir komist í höfn í samvinnu við verkefnastjóra.
- Stuðningur við teymið, þú ert til staðar fyrir samstarfsfólkið, leiðbeinir, miðlar þekkingu og styður við þróun þeirra í starfi.
- Þátttaka í verkefnum, þú tekur virkan þátt í tæknilegum verkefnum, þú ert mikilvægur hluti af hópnum.
- Þjónusta við notendur, þú tryggir skjót og fagleg viðbrögð við þjónustubeiðnum og kemur málum í réttan farveg.
- Rekstur og eftirlit, þú fylgist með kerfum, vélbúnaði og hugbúnaði, greinir frávik og bregst við áður en þau verða að vandamálum.
- Samstarf þvert á deildir, þú átt í samskiptum við aðrar einingar og tryggir að tölvudeildin styðji vel við starfsemina.
- Umbætur, þú stuðlar að bættum vinnubrögðum með því að koma auga á það sem má bæta í verkferlum og tekur þátt í að innleiða öfluga vinnustaðarmenningu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur góða tæknilega þekkingu og reynslu af upplýsingatækni.
- Microsoft 365
- Google Workspace
- Netkerfum
- Símkerfum
- Prenturum
- Á auðvelt með að vinna með fólki og nýtur þess að styðja samstarfsfólk.
- Er skipulagður, lausnamiðaður og þrífst í fjölbreyttum verkefnum.
- Hefur áhuga á að stíga inn í leiðtogahlutverk, fyrri stjórnunarreynsla er kostur en ekki skilyrði.
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Tækifæri til að þróast í öflugu tækniumhverfi
- Skemmtilegt og óþvingað vinnuumhverfi
- Samgöngustyrkur
- Farsímaáskrift og nettenging
- Aðgengi að heitum mat í hádeginu
- Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Advertisement published12. May 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Ráðgjafi viðskiptakerfa – á sviði innkaupa, framleiðslu, birgðastýringar og verkbókhalds
Advania

Verkefnastjóri í Business Central
Advania

Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Advania

Business Central ráðgjafi
Advania

Gagnasérfræðingur með áherslu á gagnavísindi og AI
Festi

Hönnuður
Slippurinn Akureyri ehf

Langar þig að vera AI Orchestrator
TACTICA

Tækjaforritari, Automation Engineer/PLC forritari
Slippurinn Akureyri ehf

Deildarstjóri hugbúnaðarlausna
Skatturinn

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum (Blönduós)
Ofar

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (QA)
APRÓ

IT Engineer
Lucinity