
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara
Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir tveimur leikskólakennurum í 100% stöðu sem fyrst eða eftir samkomulagi. Leikskólinn er fjögurra deilda með börn á aldrinum 1- 5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans. Leikskólinn hefur verið að innleiða spennandi starfshætti sem efla lýðræði barna.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikgleði - Agi - Lífsleikni
Leikskólastjóri er Harpa Dan Þorgeirsdóttir
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig B2 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi í starfi
- Á Bæjarbóli er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar
- Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi
- Í leikskólum Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
Advertisement published3. September 2025
Application deadline24. September 2025
Language skills

Required
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
ProactiveConscientiousIndependenceFlexibility
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Stuðningsfulltrúi í Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli

Uppsetning á nemendasöngleik Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Ungbarnaleikskólinn Ársól

Leikskólakennarar óskast
Kópasteinn

Leikskólakennari óskast
Helgafellsskóli

Árskógarskóli auglýsir stöðu deildarstjóra
Dalvíkurbyggð

Leikskólakennari - Hamrar
Leikskólinn Hamrar

Umsjónarkennari á miðstigi
Dalskóli

Sérkennari óskast á yngsta stig
Helgafellsskóli

Okkur vantar umsjónarkennara á yngsta stig í Lindaskóla
Lindaskóli

Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Frístundaráðgjafi í tímavinnu
Fjölskyldusvið