
Vélaverkstæði Þóris
Vélaverkstæði Þóris var stofnað árið 1995 og sérhæfir sig í viðgerðum á landbúnaðartækjum, vörubifreiðum, vögnum og vinnuvélum, en verkstæðið sinnir einnig rennismíði, fræsivinnu og alls kyns járnsmíði.
Ásamt almennum viðgerðum stærri véla er verkstæðið einnig búið smurstöð sem getur sinnt fólksbílum, vörubílum og vinnuvélum.
Framkvæmdastjóri
Vélaverkstæði Þóris á Selfossi leitar að framkvæmdastjóra. Við leitum að árangursdrifnum og jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að leiða verkstæðið inn í framtíðina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og rekstur
- Starfsmannamál
- Samskipti við viðskiptavini
- Samskipti og samningagerð við innlenda og erlenda birgja
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám sem nýtist í starfi
- Þekking á rekstri verkstæða er kostur
- Góð reynsla af rekstri og starfsmannamálum
- Góð samskiptafærni
- Haldgóð þekking á íslensku og ensku bæði í tali og rituðu máli
Advertisement published6. June 2025
Application deadline27. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Austurvegur 69, 800 Selfoss
Type of work
Professions
Job Tags