Veitur
Veitur
Veitur

Deildarstjóri reksturs vatnsmiðla

Við leitum að framsýnum leiðtoga til að leiða rekstrardeild vatnsmiðla Veitna.

Vilt þú stýra öryggi, áreiðanleika og sjálfbærni í grunninnviðum samfélagsins? Við leitum að framsýnum og lausnamiðuðum deildarstjóra til að leiða rekstrardeild vatnsmiðla hjá Veitum. Deildin ber ábyrgð á daglegum rekstri og viðhaldi dreifikerfa sem tryggja örugga og skilvirka þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi. Áhersla er lögð á öfluga stjórnun, kerfisbundið skipulag, eftirfylgni og sterka liðsheild þar sem öryggismál, fagmennska og gæði eru í forgrunni.

Hlutverk og ábyrgð

Deildarstjóri ber ábyrgð á að:

  • Stýra rekstri, viðhaldi og viðbrögðum við rekstrartruflunum með áherslu á öryggi
  • Halda yfirsýn yfir ástand kerfa og tryggja að viðhaldsverkefni séu framkvæmd samkvæmt viðhaldsáætlunum
  • Setja árangursmælikvarða og tryggja reglulega eftirfylgni með frammistöðu deildarinnar
  • Innleiða nýsköpun og styðja við sjálfbærar lausnir í rekstri og viðhaldi
  • Byggja upp jákvæðan og árangursdrifinn vinnuanda og styðja þróun starfsfólks
  • Stuðla að góðum samskiptum við aðrar deildir, birgja og viðskiptavini
  • Unnið sé í samræmi við gildi Veitna sem eru Frumkvæði - Framsýni - Hagsýni - Heiðarleiki

Við leitum að einstaklingi sem hefur:

  • Haldbæra leiðtoga- og stjórnendareynslu (5 ár eða meira)
  • Sterka samskiptafærni og hæfni til að leiða breytingar
  • Áhuga á sjálfbærum lausnum og gagnadrifinni ákvarðanatöku
  • Leiðtogahæfni og reynslu af því að byggja upp sterkt teymi

Umhverfi þar sem þú hefur áhrif

Rekstrardeildin er hluti af sviði vatnsmiðla sem þjónustar samfélagið með því að tryggja aðgengi að hreinu vatni, fráveitu og hitaveitu. Unnið er eftir skýrum ferlum, með áherslu á öryggi, umhverfisvernd og hagkvæmni, og að sjálfsögðu með þjónustu við viðskiptavini í forgrunni.

Advertisement published2. June 2025
Application deadline16. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Business strategy
Work environment
Professions
Job Tags