
BIOEFFECT ehf.
BIOEFFECT er íslensk húðvörulína. Innblástur BIOEFFECT er sóttur í hreina íslenska náttúru og styrkleiki húðvaranna byggir á hreinleika, fáum innihaldsefnum og virkni. Húðvörurnar eru seldar um allan heim og hafa hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir virkni og gæði. Vöruþróun og framleiðsla BIOEFFECT fer að öllu leyti fram í höfuðstöðvum félagsins á Íslandi, Kópavogi.

Innkaupa- og aðfangastjóri (Supply Chain Manager)
BIOEFFECT leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að sjá um innkaupa- og aðfangakeðju félagsins.
Starfið felur meðal annars í sér skipulagningu og áætlanagerð, innkaup og birgðastýringu. Þá fylgir starfinu mikil erlend samskipti við birgja og samningagerð. Þá vinnur innkaupa- og aðfangastjóri að því að hámarka skilvirkni og kostnaðarhagræði í öllu ferlinu. Starfið felur ekki í sér mannaforráð.
BIOEFFECT eru al-íslenskar húðvörur og fer framleiðsla vörulínunnar fram í höfuðstöðum félagsins í Kópavogi. Alls starfa um 55 starfsmenn hjá félaginu, flestir á Íslandi en BIOEFFECT er einnig með starfsstöðvar í London og New York. Vörur félagsins fást um allan heim, á netinu og í verslunum í yfir 20 löndum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði vörustjórnunar og stjórnun aðfangakeðju, viðskipta-, verkfræði eða sambærileg menntun.
- Reynsla af innkaupum, samningagerð og birgðastjórnun.
- Reynsla af sambærilegu starfi hjá framleiðslufyrirtæki mikill kostur.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Þekking og reynsla af Navision / Business Central.
- Greiningarhæfni.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur fyrir vistvænar samgöngur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Góður starfsandi og líflegt starfsumhverfi
- Öflugt starfsmannafélag
Advertisement published2. June 2025
Application deadline10. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Víkurhvarf 7, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
Financial planningStock managementDynamics NAVProactiveDesigning proceduresImplementing proceduresHuman relationsAmbitionMicrosoft Dynamics 365 Business CentralContractsIndependencePlanning
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (9)

Vaktstjóri í kerskála
Norðurál

Vöruflokkastjóri
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Forstöðumaður þróunar- og þjónustusviðs
Ferðamálastofa

Deildarstjóri reksturs vatnsmiðla
Veitur

Skólastjóri - Hamranesskóli
Hafnarfjarðarbær

Yfirlögfræðingur
Reitir fasteignafélag

Duty Level Manager
Costco Wholesale

Verkstjóri pökkunar
Lýsi

Director of Business Control
Icelandair