Álfatún
Álfatún
Álfatún

Aðstoðarleikskólastjóri í leikskólann Álfatún

Leikskólinn Álfatún er 5 deilda leikskóli á besta stað í Fossvoginum. Í leikskólanum eru 79 börn á aldrinum 1 – 6 ára.

Við leitum að öflugum leikskólakennara í stöðu aðstoðarleikskólastjóra frá september/október eða eftir samkomulagi. Aðstoðarleikskólastjóri er staðgengill leikskólastjóra. Hann er leiðandi aðili í skipulagi faglegs starfs innan leikskólans og tekur virkan þátt í stjórnun og umsjón starfsmannamála ásamt virku samstarfi við foreldra.

Áherslur okkar eru málrækt, hreyfing, útivera og skapandi starf í gegnum leik. Áhugi okkar snýr að því að auka lýðræði, skapandi hugsun og menningu. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda þar sem áhersla er lögð á liðsheild, umhyggju, jákvæð samskipti, gleði og lausnamiðaða hugsun.

Aðstoðarleikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Kópavogsbæjar.

Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna á https://alfatun.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans
  • Faglegur leiðtogi og mentor fyrir aðra starfsmenn
  • Tekur þátt í skipulagsvinnu og mótun skólastarfsins
  • Tekur þátt í foreldrasamstarfi, upplýsingagjöf og kynningu á skólanum
  • Tekur þátt í ráðningum starfsfólks
  • Tekur þátt í launavinnslu, skýrslu- og áætlanagerð
  • Tekur þátt í innkaupum og rekstri skólans
  • Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið leikskólakennari og reynsla af starfi í leikskóla
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi framahaldsnám í stjórnun eða öðru sem nýtist í starfi og/eða reynslu af stjórnun leikskóla
  • Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnarmiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Styttri vinnuvika, vinnustytting er að hluta til notuð í lokanir í jóla- páska- og vetrarfríum.
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Advertisement published9. August 2025
Application deadline24. August 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Álfatún 2, 200 Kópavogur
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags