Rafmennt
Rafmennt
Rafmennt

Kunnáttumenn

Þetta námskeið er almennt lágmarkskrafa fyrir fastráðið starfsfólk og verktaka veitna til þess að öðlast
lyklaheimildir við og í kringum raforkuvirki.

Viðfangsefni námskeiðsins er að fara yfir ákvæði gildandi reglugerða varðandi vinnu við raforkuvirki og túlkun þeirra. Sérstaklega er farið í gildandi verklagsreglur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar,
þar sem orðsending 1/84, VLR 3.031 og VLR 3.032 vega þungt, ásamt viðeigandi ákvæðum í ÍST EN 61936-1 og ÍST EN 50522.

Farið er yfir uppbyggingu og kröfur í rafmagnsöryggisstjórnkerfum (RÖSK) ásamt reglum um hvernig staðið er að uppbyggingu og afnámi öryggisráðstafana og vinnu við rekstrareiningu í raforkukerfinu í samræmi við framangreind skjöl. Jafnframt er farið yfir ábyrgðir, framkvæmd og samræmd vinnubrögð við rof og undirbúning vinnu við kerfishluta eða rekstrareiningar í raforkukerfum.

Starts
26. Sep 2025
Type
On site / remote
Timespan
1 times
Price
31,200 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories