

CompTIA Linux+ Inngangur að Linux-stýrikerfum
Áfangaheiti: UPTÆ40LINUX-TIA
CompTIA Linux+ – Fagleg færni í opnum stýrikerfum
Þetta hagnýta námskeið er ætlað öllum sem vilja öðlast traustan grunn í Linux stýrikerfum og undirbúa sig fyrir alþjóðlega viðurkennda CompTIA Linux+ vottun. Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í Linux og þeim sem vilja dýpka færni sína til að vinna við kerfisstjórn og rekstur opinna stýrikerfa.
Markmiðið er að nemendur öðlist djúpan skilning á uppsetningu, stillingum og notkun Linux-stýrikerfa – bæði á skjáborði og netþjónum. Farið er yfir skipanalínu (shell), skráarstjórnun, notendastýringu, netstillingar, kerfisöryggi, hugbúnaðarstýringu og sjálfvirkni í rekstri. Námskeiðið er jafnframt góð undirstaða fyrir starf í DevOps, kerfisrekstri og skýjaumhverfi.
Eftir námskeiðið ættu nemendur að:
-
Skilja uppbyggingu og grunnvirkni Linux-stýrikerfa
-
Vera færir um að setja upp og stilla Linux kerfi, bæði netþjóna og vinnustöðvar
-
Nota skipanalínu til að stjórna skrám, ferlum, heimildum og hugbúnaði
-
Skilja hvernig notendur, hópar og réttindi eru stjórnuð í Linux
-
Þekkja öryggistól og leiðir til að verja kerfi gegn ógnunum
-
Geta skrifað einfaldar skriptur og stilla sjálfvirkni
-
Setja upp þjónustur og framkvæma bilanagreiningu í daglegum rekstri
Kennsluaðferðir og áherslur
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, verkefnum og verklegum æfingum í Linux hermum. Unnið er með raunveruleg dæmi sem tengjast daglegum rekstri og netumhverfi. Notast er við viðurkenndar enskar kennslubækur og opin Linux-umhverfi. Kennt er af reyndum sérfræðingi með reynslu af Linux-rekstri í atvinnulífinu.
Kennt verður á mánudögum og þriðjudögum, frá kl 17:00 - 21:00, á. Námskeiðið er 5 vikur, alls 10 skipti. Kennslan samanstendur af fyrirlestrum og verklegum æfingum frá CompTia. Kennslustundir verða teknar upp, þátttakendum gefst því kostur að rifja upp tíma, horfa á fyrirlestra sem þeir hafa misst af og jafnvel tekið hluta eða allt námið í fjarkennslu.
Fyrsti tími er 29. september 2025 og síðasti tímin er 29. október 2025. Meðal námsgagna sem nemendur fá afhent er bókin "CompTIA Linux+ Study Guide: Exam XK0-006" eftir Richard Bloom.