

Tæknilæsi og tölvufærni-íslenska
Markmið námsins er að auka tæknifærni þátttakenda, sem og að efla hæfni þeirra og trú á eigin getu til að takast á við breytingar og tækniframfarir í atvinnulífinu.
Að loknu námi hafa þátttakendur aukið færni og þekkingu í upplýsingatækni og tölvunotkun, og þannig styrkt stöðu sína á vinnumarkaði til framtíðar.
Námið samanstendur af sex áföngum:
- Fjarvinna og fjarnám
- Sjálfvirkni og gervigreind
- Skýjalausnir
- Stýrikerfi
- Tæknilæsi og tölvufærni
- Ritun - íslenska
- Lestur - íslenska
Fyrirkomulag: Námið hefst 28. september. Um er að ræða 10 vikna nám sem kennt verður í staðnámi. Fyrsti tími byrjar á vinnustofu 28. september kl. 13:00. Kennt verður á mánudögum og þriðjudögum frá 13:00-16:00.
Leiðbeinendur tala íslensku. Ef brýn þörf er á, skýra leiðbeinendur mál sitt á öðru tungumáli sem hentar nemahópi.
Önnur vinnustofa verður síðan í byrjun nóvember. *
*Birt með fyrirvara um breytingar
Leiðbeinandi: Snæbjörn Sigurðarson, en hann hefur ríflega 20 ára reynslu af tæknikennslu
Hafið samband við Heiðu ([email protected]) eða Andreu ([email protected]) fyrir frekari upplýsingar um námið
Verð: 29.000 kr (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.
Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá skráningu. Sjá greiðsluskilmála.
Smellið hér til að skrá ykkur úr námi.
Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!
Click here for english https://www.simey.is/is/moya/inna/taeknilaesi-og-tolvufaerni-islenska