

Tæknilæsi og tölvufærni-fjarnám
Tæknilæsi og tölvufærni - fjarnám
Flokkur: Lengra nám
Markmið námsins er að auka tæknifærni þátttakenda, sem og að efla hæfni þeirra og trú á eigin getu til að takast á við breytingar og tækniframfarir í atvinnulífinu.
Að loknu námi hafa þátttakendur aukið færni og þekkingu í upplýsingatækni og tölvunotkun, og þannig styrkt stöðu sína á vinnumarkaði til framtíðar.
Námið samanstendur af sex áföngum:
- Fjarvinna og fjarnám
- Sjálfvirkni og gervigreind
- Skýjalausnir
- Stýrikerfi
- Tæknilæsi og tölvufærni
Fyrirkomulag: Námið hefst 28. september. Um er að ræða 10 vikna nám sem kennt verður fjarnámi. Fyrsti tími byrjar á vinnustofu á netinu 28. september kl 16:30.
Önnur vinnustofa verður síðan á netinu 2.-3. nóvember. Þátttakendur fá tvö myndbönd í viku hverri og leysa verkefni vikulega.*
*Birt með fyrirvara um breytingar
Leiðbeinandi: Snæbjörn Sigurðarson, en hann hefur ríflega 20 ára reynslu af tæknikennslu
Hafið samband við Helenu ([email protected]) eða Andreu ([email protected]) fyrir frekari upplýsingar um námið
Verð: 20.700 kr (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.
Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá skráningu. Sjá greiðsluskilmála.
Smellið hér til að skrá ykkur úr námi.
Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!