

SketchUp 101
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja læra að nota SketchUp til þrívíddarteikninga, hvort sem er til hugmyndavinnu, hönnunar, iðnstarfa eða kynningar.
Hentar byrjendum og þeim sem hafa litla sem enga reynslu af forritinu, m.a. iðnaðarmönnum, hönnuðum, arkitektanemum, listafólki og áhugafólki um þrívídd.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist traustan grunn í notkun SketchUp og geti sjálfstætt unnið einfaldar og meðalflóknar þrívíddarteikningar, sett þær upp á faglegan hátt og kynnt þær með myndum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
Lota 1 – Teikniumhverfið og grunnatriði
• Kynning á SketchUp Pro og notkunarmöguleikum forritsins
• Yfirlit yfir teikniumhverfið, skjáinn og helstu verkfæri
• Innlestur grunngagna og grunnteikning í SketchUp
• Verkefni kynnt og afhent
Lota 2 – Verkfæri fyrir flóknari teikningar
• Yfirferð á verkefni og svör við spurningum
• Breytingatól, hópar og tögg til að einfalda vinnuferlið
• Verkfæri sem nýtast við flóknari módel
• Nýtt verkefni kynnt og afhent
Lota 3 – Framsetning og útlit teikninga
• Yfirferð á verkefni og svör við spuringum
• Áferðir, litir og uppsetning mynda
• Notkun einingasafna í skýinu
• Möguleikar gervigreindar við fullvinnslu mynda
• Hvar og hvernig hægt er að afla sér frekari þekkingar
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- geta notað helstu verkfæri SketchUp til að búa til þrívíddarteikningar
- geta unnið sjálfstætt einföld og meðalflókin módel
- geta skipulagt teikningar með hópum og töggum
- geta sett á efni, liti og einingar til að bæta framsetningu
- geta útbúið og kynnt teikningar með myndum
- hafa innsýn í notkun gervigreindar við myndgerð
Aðrar upplýsingar:
- Fyrirkomulag kennslu: Fjarnámskeið / netnámskeið, innlögn á ákveðnum tíma.
- Uppsetning: 3 lotur, 1,5 klst hver lota
- Kennsla: Lifandi netfyrirlestrar sem eru teknir upp
- Gögn: Glærur, grunngögn fyrir verkefni og aðgangur að upptökum
- Verkefni: Þrjú verkefni (smáhýsi, bygging að utan og innan)
- Skil: Verkefnum skilað rafrænt samkvæmt leiðbeiningum
- Kennari: Björn Jóhannsson, FÍLA, BA Hons, Dipl LA, MSc
- Námskeiðahaldari: IÐAN fræðslusetur – málm- og véltæknigreinar