
Iðan fræðslusetur

Listin að gera jólakokteil
Lærðu að hrista saman jólalega kokteila á skemmtilegu og verklegu námskeiði! Þátttakendur kynnast grunnatriðum kokteilagerðar, læra að skipuleggja kokteilastöð og útbúa þrjár jólalegar útfærslur á vinsælum kokteilum. Að sjálfsögðu verður smakkað á afrakstrinum og því tilvalið að skilja bílinn eftir heima. Allir þátttakendur fá veglegt kokteilagerðarsett að gjöf til að taka með sér heim og nýta við að útbúa uppáhaldskokteilana sína.
Fyrir hverja:
Alla sem hafa áhuga á kokteilagerð, jafnt byrjendur sem vilja læra grunnatriðin og þá sem hafa einhverja reynslu og vilja skerpa á tækni sinni og framsetningu drykkja.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist þekkingu á grunnatriðum kokteilagerðar og sjálfstraust til að útbúa bragðgóða og fallega framreidda kokteila.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnatriði í uppbyggingu kokteila (hlutföll, bragðjafnvægi og blöndunartækni)
- Notkun baráhalda og uppsetningu kokteilastöðvar
- Val á hráefnum, ís, glösum og skrauti
- Þrjár jólalegar útfærslur á vinsælum klassískum kokteilum
- Framsetningu, útlit og faglegt viðmót við drykkjagerð
Að loknu námskeiði á nemandi að:
Geta útbúið kokteila eftir uppskrift, beitt helstu grunnaðferðum við blöndun og hristingu og skreytt drykki á fallegan og skapandi hátt – og komið vinum og vandamönnum skemmtilega á óvart í næsta matarboði!
Gott að vita:
Námskeiðið er verklegt og þátttakendur smakka á veigunum. Það er því tilvalið að skilja bílinn eftir heima og láta aðra sjá um aksturinn!
Hefst
4. des. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Autodesk Inventor Essentials grunnnámskeið
Iðan fræðsluseturStaðnám02. des.
Ostanámskeið með Bjarka Long
Iðan fræðsluseturStaðnám04. des.
Lagning þakpappa
Iðan fræðsluseturStaðnám02. des.
Umbætur og úttektir á prentferlum
Iðan fræðsluseturFjarnám30. nóv.
Raki og mygla í húsum 3
Iðan fræðsluseturStaðnám26. nóv.
Burðarvirkismæling
Iðan fræðsluseturStaðnám30. nóv.