Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Autodesk Inventor Essentials grunnnámskeið

Þrívíddarhönnun frá grunni – lærðu að nýta undirstöðuatriði Inventor hugbúnaðarins.

Fyrir hverja:

Fyrir tæknimenn, iðnaðarmenn og aðra sem vilja tileinka sér grunnfærni í þrívíðri, tölvustuddri hönnun með Autodesk Inventor. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem og þeim sem vilja rifja upp undirstöðuatriði. Hentar vel fyrir þá sem hafa grunn í AutoCad.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist færni í að nýta Inventor við hönnun, skissugerð, íhlutaval og uppsetningu á teikningum með faglegri nálgun.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Skissugerð og þrívíddarteikning
  • Efnislistar og íhlutaval
  • Samsetningar, skorður og hreyfingar þeirra
  • Teiknigerð: vörpun, snið, hlutmynd og ísómetría
  • Innsýn inn í fleiri möguleika sem Inventor hefur upp á að bjóða

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Nýtt verkfæri Inventor til teiknigerðar
  • Geta mótað og sett saman íhluti í Inventor
  • Skilja samhengi hönnunar og framleiðslu
  • Unnið faglega með þrívíddargögn og skjöl

Aðrar upplýsingar:

Námsgögn eru afhent á staðnum og tölvur uppsettar. Ekki þarf sérstaka forþekkingu í Inventor eða öðrum þvívíddarforritum. Iðan er viðurkenndur kennsluaðili (ATC) fyrir Autodesk.

Hefst
2. des. 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar