
Iðan fræðslusetur

Kælitækni - mat og vottun
Undirbúningur fyrir opinbera vottun í kælitækni – í samræmi við íslenskar reglur.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er fyrir kælitæknimenn sem stefna að opinberri vottun samkvæmt reglugerðum um meðhöndlun flúoraðra kælimiðla og vilja styrkja verklega og fræðilega hæfni sína fyrir hæfnismat.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til að standast hæfnismat í kæli- og frystitækni samkvæmt viðmiðum Umhverfis og orkustofnunar.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Kyoto- og Montreal-bókanir
- Uppbyggingu kæli- og frystikerfa
- Tákn, mælitæki og yfirhitun/undirkæling
- Reglugerðir um kælimiðla (nr. 1066/2019 o.fl.)
- Meðferð kælimiðla og smurolíu
- Viðhald, bilanagreining og lekaeftirlit
- Lóðningar og öryggisatriði
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja leyfilega meðferð flúoraðra kælimiðla
- Skilja hvernig kælikerfi eru uppbyggð og starfa
- Beita réttu verklagi og mælitækjum
- Standast hæfnismat samkvæmt kröfum viðkomandi ráðuneytis
Aðrar upplýsingar:
Próf tekur allt að 6 klst. og fer fram í samráði við kennara eftir námskeiðið. Námskeiðið er í samræmi við kröfur reglugerðar ESB (EU) nr. 517/2014. Námskeiðið fer fram hjá Iðunni fræðslusetri eða eftir óskum fyrirtækja.
Hefst
23. mars 2026Tegund
StaðnámTímalengd
2 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Merking vinnusvæða
Iðan fræðsluseturStaðnám26. mars
Öryggis- og lokaúttekt - skil á gögnum
Iðan fræðsluseturStaðnám24. mars
Masterclass í After Effects
Iðan fræðslusetur24. mars
Vaktstjóranámskeið
Iðan fræðsluseturStaðnám24. mars
Chris Lund kennir á Photoshop og Lightroom
Iðan fræðsluseturStaðnám24. mars
Trjáklippingar - krónuklippingar
Iðan fræðsluseturStaðnám24. mars
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir
Iðan fræðsluseturFjarnám23. mars
Trjá- og runnaklippingar
Iðan fræðsluseturStaðnám21. mars
Endurmenntun atvinnubílstjóra - Vistakstur
Iðan fræðsluseturStaðnám21. mars
Áhættumat trjáa - endurmenntun fyrir fagfólk
Iðan fræðsluseturStaðnám20. mars