Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Vaktstjóranámskeið

Námskeiðið er líka kennt á ensku: https://www.idan.is/namskeid/1352/shift-manager-course/
 
Hér er farið yfir mörg af þeim helstu atriðum sem góður stjórnandi þarf að tileinka sér. Farið er yfir mannlega þáttinn, breytt tíðarfar og breytta sýn ungs fólks á stjórnendur og stjórnendahætti dagsins í dag. Námskeiðið er mikið byggt á samtölum og rökræðum um hvernig og hvers vegna.

Fyrir hverja:

Þjónustufólk og starfsmenn sem stefna á stjórnunarhlutverk eða vilja efla leiðtogahæfni sína.

Markmið:

Að kynna helstu eiginleika góðs stjórnanda og styrkja leiðtogahæfni í nútíma starfsemi.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Mannlega þáttinn í stjórnun
  • Breyttar væntingar og sýn ungs fólks
  • Nútímalega stjórnunarhætti og samskipti
  • Rökræður og samræður um „hvernig“ og „af hverju“

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja helstu atriði góðrar stjórnunar
  • Aðlaga sig að breyttum vinnuaðstæðum og væntingum
  • Beita mannlegri og faglegri stjórnunarhæfni í daglegu starfi
Hefst
24. mars 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar