
Iðan fræðslusetur

Trjáklippingar - krónuklippingar
Námskeiðið er endurmenntunarnámskeið ætlað öllum garðyrkjufræðingum sem vilja bæta þekkingu sýna og rifja upp og læra nýjar aðferðir.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er endurmenntunarnámskeið ætlað öllum garðyrkjufræðingum sem vilja bæta þekkingu sína og rifja upp og læra nýjar aðferðir.
Markmið:
Að bæta þekkingu þátttakenda og og rifja upp og kenna þeim nýjar aðferðir.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Aðferðir við klippingar á trjákrónum.
- Lífsstarfsemi trjáa og muninn á heilbrigði þeirra í náttúrulegu umhverfi og borgarumhverfi.
- Hvernig tré bregðast við áreiti svo sem klippingum og hvernig er hægt að lágmarka skaða þegar trjákróna er snyrt.
- Hvernig á að meta ástand trjáa áður en þau eru klippt svo hægt sé að gera sér grein fyrir því hvaða inngrip hentar hverju þeirra.
- Hvenær á að klippa og hvenær ekki.
- Hvaða vélar og verkfæri henta til krónuklippinga og hvað ber að varast.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta beitt helstu aðferðum og valið rétt verkfæri við klippingar á trjákrónum.
- Þekkja lífstarfsemi trjáa og viðbrögð þeirra við klippingu.
- Geta ástandsmetið tré og ákvarðað réttan tíma fyrir klippingu
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Garðyrkjuskólann - FSu.
Gerða verðar verklegar æfingar í mati á trjákrónum, auk þess sem farið verður lauslega í hvaða viðhaldi þarf að sinna á verkfærum.
Nemendur taki með sér útifatnað í samræmi við veður í verklega tíma.
Kennari er Ágústa Erlingsdóttir skrúðgarðyrkjumeistari, fv. brautarstjóri skrúðgarðyrkjubrautar hjá Garðyrkjuskólanum - FSu.
Hefst
24. mars 2026Tegund
StaðnámDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Masterclass í After Effects
Iðan fræðslusetur24. mars
Vaktstjóranámskeið
Iðan fræðsluseturStaðnám24. mars
Chris Lund kennir á Photoshop og Lightroom
Iðan fræðsluseturStaðnám24. mars
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir
Iðan fræðsluseturFjarnám23. mars
Trjá- og runnaklippingar
Iðan fræðsluseturStaðnám21. mars
Endurmenntun atvinnubílstjóra - Vistakstur
Iðan fræðsluseturStaðnám21. mars
Áhættumat trjáa - endurmenntun fyrir fagfólk
Iðan fræðsluseturStaðnám20. mars
Rakamælingar í byggingum
Iðan fræðsluseturStaðnám19. mars
Áhættugreiningar í bygginga- og mannvirkjagerð
Iðan fræðsluseturStaðnám18. mars