

Endurmenntun atvinnubílstjóra - Farþegaflutningar
Fyrir hverja:
Alla bílstjórar með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 sem vilja viðhalda atvinnuréttindum sínum. Þetta námskeið flokkast undir hlutann öryggi.Hér geta bílstjórarar skoðað sína stöðu gagnvart námskeiðum. Ef engin námskeið birtast, eru engin námskeið í gildi eða hafa ekki verið skráð af námskeiðshöldurum. Atvinnubílstjórar sem aka bílum í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að að ljúka fimm endurmenntunarnámskeiðum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun til að fá tákntöluna 95 í skírteinið sitt. 95 tákntalan gerir bílstjórum kleift að starfa við akstur innan EES svæðisins. Frekari upplýsingar má nálgast á vef Samgöngustofu
Markmið:
Að því er stefnt að bílstjórinn aki mjúklega og af öryggi með vellíðan farþega í fyrirrúmi, kunni leiðir til að veita örugga og vandaða þjónustu og tileinki sér góða framkomu gagnvart farþegum og öðrum vegfarendum, þekki sérkenni ólíkra hópa farþega og kunni samskiptahætti sem stuðla að farsælli lausn ágreiningsmála, þekki ákvæði í lögum og reglum um farþegaflutninga í atvinnuskyni, búnað hópbifreiða, nauðsynleg skjöl og leyfi, náttúruvernd og skyldur bílstjóra.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Öryggi í farþegaflutningum
- Hleðslutækni
- Farþegaflutningur í atvinnuskyni
- Náttúruvernd og ferðamennska
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- þekkja atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða og farþegaflutningum
- skilja ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega
- skilja þjónustuhlutverki bílstjóra
- hafa þekkingu á náttúruvernd, ferðamennsku og mjúkum akstri
- þekkja ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða.
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er kennt eingöngu í streymi á netinu.