Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Ofnæmi, óþol og sérfæði í faglegri matargerð

Á þessu hagnýta og fræðandi námskeiði fá þátttakendur aukinn skilning á ofnæmis- og óþolsvöldum í matvælum, mismunandi sérfæði og mikilvægi réttrar meðferðar og merkinga matvæla.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað matreiðslumenntuðu starfsfólki og öðrum sem starfa við undirbúning, meðferð eða framreiðslu matvæla, hvort sem er í skólum, leikskólum, mötuneytum, velferðarþjónustu, heilbrigðisstofnunum eða öðrum starfsstöðvum þar sem tekið er tillit til sérþarfa neytenda.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu þátttakenda á helstu ofnæmis- og óþolsvöldum, sérfæði og mismunandi næringarþörfum. Áhersla er lögð á örugga meðferð matvæla, lestur innihaldslýsinga og hvernig velja má hentug hráefni til að tryggja bæði öryggi og næringargildi máltíða.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Helstu ofnæmis- og óþolsvalda og hvar þá er að finna
  • Matvæli og hráefni sem hægt er að nota í stað algengra ofnæmisvalda
  • Sérfæði (t.d. fæði fyrir sykursjúka, vegan- og grænmetisfæði, Kosher og Halal)
  • Lestur og túlkun innihaldslýsinga og merkinga matvæla
  • Krossmengun og örugg vinnubrögð í eldhúsi
  • Norrænar ráðleggingar um næringu og ráðleggingar Embættis landlæknis
  • Næringarþarfir ólíkra hópa og hvernig tryggja má jafnvægi í máltíðum fyrir einstaklinga með sérþarfir

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja helstu ofnæmis- og óþolsvalda í matvælum
  • Geta lesið og túlkað innihaldslýsingar á öruggan hátt
  • Skilja grunnatriði mismunandi sérfæðis og næringarþarfa ólíkra hópa
  • Geta valið viðeigandi hráefni og komið í veg fyrir krossmengun
  • Stuðla að öruggu, faglegu og næringarríku matarumhverfi

Aðrar upplýsingar:

Kennari á námskeiðinu er:

Fríða Rún Þórðardóttir – næringarfræðingur og sérfræðingur í íþróttanæringu

Fríða Rún Þórðardóttir er næringarfræðingur með áratuga reynslu af næringarráðgjöf, fræðslu og kennslu á sviði heilsu, næringar og íþrótta. Hún lauk BS- og MS-prófi í næringarfræði og næringarráðgjöf frá The University of Georgia í Bandaríkjunum.

Fríða hefur starfað um árabil hjá Landspítalanum þar sem hún hefur sinnt sérfæði og ofnæmisfæði, auk þess að bera ábyrgð á gagnagrunni matvæla. Hún hefur jafnframt kennt námskeið og þróað fræðsluefni á sviði næringar, heilsueflingar og ofnæmismála.

Fríða er einnig þekkt fyrir störf sín að fræðslu og útgáfu. Hún er höfundur bókarinnar Góð næring – betri árangur í íþróttum og heilsurækt og hefur skrifað fjölda greina og fræðsluefnis um næringu, heilsu og hreyfingu.

Fríða hefur einnig gegnt formennsku í Astma- og ofnæmisfélagi Íslands og tekið virkan þátt í fræðslu og hagsmunabaráttu á sviði ofnæmis- og loftgæðamála bæði hérlendis og á vettvangi evrópskra samtaka.

Hefst
29. sept. 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar