
Iðan fræðslusetur

Ábyrgð byggingastjóra
Námskeið er fyrir þau sem ætla sér að öðlast starfsleyfi byggingarstjóra skv. grein 4.7.3 í byggingarreglugerð.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir þau sem ætla sér að öðlast starfsleyfi byggingarstjóra skv. grein 4.7.3 í byggingarreglugerð.
Markmið:
Markmið þess er að upplýsa þátttakendur um ábyrgð sína og skyldur sem byggingarstjórar.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Byggingarleyfi og önnur samskipti sem byggingarstjóri þarf að eiga við byggingaryfirvöld.
- Hlutverk og ábyrgð byggingarstjóra við verkframkvæmdir og meðhöndlun uppdrátta
- Lög, reglugerðir, tryggingar og tryggingaslit.
- Gildi og framkvæmd úttekta, s.s. áfanga-, fokheldis-, stöðu- og lokaúttekta.
- Gæðakerfi byggingarstjóra.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja hlutverk og ábyrgð byggingastjóra við verklegar framkvæmdir.
- Gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir starfinu.
- Geta öðlast starfsleyfi byggingarstjóra að uppfylltum öðrum skilyrðum skv. kröfum mannvirkjalaga og byggingareglugerðar.
Annað:
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hefst
18. maí 2026Tegund
Staðnám og fjarnámDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur