

Ál og álsuða
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar fagfólki í málmiðnaði, iðnmenntuðu fólki og tæknifólki sem vill dýpka þekkingu sína á suðu á áli. Einnig gagnlegt fyrir þá sem vinna við hönnun, samsetningu eða viðhald á álhlutum og vilja öðlast betri skilning á efniseiginleikum og verklegri meðhöndlun áls.
Markmið:
Að veita þátttakendum skilning á sérstöðu áls sem málms, ásamt því að þjálfa þá í viðeigandi suðuaðferðum og undirbúningi sem tryggir gæði og öryggi í samsetningu álhluta.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Efniseiginleika áls og hvernig þeir eru frábrugðnir öðrum málmum
- Almenn efnisfræði áls og álagsþol
- Hreinsun og meðhöndlun efnis fyrir suðu
- Undirbúning suðu og gæðaviðmið
- Helstu suðuaðferðir: TIG og MIG
- Suðugæði, prófanir og mat á niðurstöðum
- Mismunandi samsetningaraðferðir fyrir ál og val á tækni
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Skilja helstu efniseiginleika áls og áhrif þeirra á suðuferli
- Þekkja nauðsynlegan undirbúning og meðhöndlun efnis fyrir vandaða suðu
- Beita TIG og MIG-suðuaðferðum við suðu á áli í einföldum verkefnum
- Meta gæði suðu og þekkja helstu vandamál sem geta komið upp við vinnu með ál
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið skiptist í bóklegan og verklegan hluta. Í verklega hlutanum vinna þátttakendur undir leiðsögn við suðu með TIG og MIG búnaði. Mikil áhersla er lögð á öryggi, verklag og vandaðan undirbúning. Þátttakendur þurfa að mæta í viðeigandi vinnufatnaði. Grunnþekking í málmsuðu er æskileg en ekki nauðsynleg forsenda.