Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

CNC-stýrðar iðnvélar

Frá teikningu til fullsmíðaðs vinnslustykkis – náðu tökum á Inventor CAM og CNC-fræs og rennibekk.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er fyrir iðnaðarmenn, tæknimenn og aðra sem vilja öðlast grunnfærni í forritun og notkun tölvustýrðra fræsivéla og rennibekkja, með áherslu á CAM og CNC tækni.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist hagnýta færni í notkun Inventor CAM forritsins og framkvæmd verkefna í Haas CNC fræsivél og Haas CNC rennibekk – frá teikningu til framkvæmdar.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Notkun Inventor CAM viðmótsins
  • Forritun með ISO- og G-kóða
  • Verklega framkvæmd verkefni á Haas Desktop Mill og Lathe
  • Verkfæraval og öryggisstaðla
  • Færsla forrita í vélar og tenging CAD og CAM

Að loknu námskeiði á nemamdi að:

  • Geta forritað einfaldar CNC vélar
  • Beitt öryggisreglum og verklagi
  • Nýtt Inventor CAM við hönnun og úrvinnslu
  • Framkvæmt verkefni sjálfstætt á CNC tækjum

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið fer fram í húsnæði Iðunnar, Vatnagörðum 20. Þátttakendur fá aðgang að öllum búnaði og tækjum. Ekki er nauðsynlegt að hafa reynslu af notkun CNC -stýrðra tækja en grunnþekking á rennismíði, fræsivinnu og teiknivinnu er kostur.

Hefst
11. maí 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar