Sölu og þjónustufulltrúi í verslun
Við hjá Ísleifi leitum að metnaðarfullum og duglegum einstaklingum til framtíðarstarfa.
Ný og glæsilega verslun og sýningaraðstaða Ísleifs er staðsett á Smiðjuveginum í Kópavogi og þar starfar góður hópur að því að þjónusta viðskiptavini, einstaklinga og fagfólk með allt sem snýr að gæðalausnum fyrir baðherbergi og eldhús.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem býður upp á möguleika til starfsþróunar og vaxtar í starfi. Við leggjum mikið upp úr góðu vinnuumhverfi þar sem frábært teymi starfsfólks hefur það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu.
Vinnutími skiptist aðra hvora viku:
Mán – fimmtud. 9-17 /10-18.
Föstudagar 9-17.
Einn til tvo laugardaga í mánuði.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um hjá okkur!
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aldís Arna Einarsdóttir rekstrarstjóri: aldis@isleifur.is
- Þjónusta viðskiptavina
- Tiltekt og afgreiðsla pantana
- Halda verslun snyrtilegri
- Samskipti við vöruhús
- Áfylling á vörur
- Framúrskarandi í mannlegum samskiptum
- Reynsla af þjónustustörfum
- Góð grunn- tölvukunnátta
- Hafa gaman af því að vinna í teymi og ná árangri
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Stytting vinnuviku
- Heilsustyrkur
- Jafnlaunavottun
- Samgöngustyrkur