ELKO
ELKO
ELKO

Sölufulltrúar-helgarstarf Skeifan

Við leitum að sölufulltrúum til starfa í verslun ELKO Skeifunni.

Starfið felur í sér sölu til viðskiptavina og hentar fólki með mikinn áhuga á tækni, þjónustu og samskiptum.

Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum.

Um helgarstarf er að ræða og unnið er laugardaga og sunnudaga, aðra hverja helgi, samkvæmt vaktaplani sem liggur fyrir mánuð fram í tímann.

Vinnutími miðast almennt við afgreiðslutíma verslunar, 11-18 á laugardögum og 12-18 sunnudögum með möguleika á auka vöktum.

Hæfniskröfur:

  • 20 ára og eldri
  • Rík þjónustulund
  • Geta unnið sjálfstætt og hugsað í lausnum
  • Geta sýnt frumkvæði í starfi og tekist á við krefjandi verkefni
  • Hæfni í samskiptum og fagleg vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð
  • Íslenskukunnátta skilyrði

ELKO leggur mikið upp úr góðri fræðslu og nýliðamóttöku fyrir sitt starfsfólk og vann ELKO menntaverðlaun atvinnulífsins árið 2024.

ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Fríðindi í starfi

  • Styrkur til heilsueflingar
  • Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni og N1
  • Aðgangur að velferðapakka ELKO
  • Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias

Umsóknarfrestur er út 17.maí 2024

Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur17. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Skeifan 19, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar