Inkasso
Inkasso

Lausnamiðaður greiðsluráðgjafi

Við leitum að sterkum liðsmanni í þjónustuverið okkar.

Okkar sýn er manneskjuleg innheimtuþjónusta með áherslu á upplifun greiðenda og samfélagslega ábyrgð.

Ef þú ert lausnamiðaður og drífandi einstaklingur með þægilegt viðmót og ríka þjónustulund þá hvetjum við þig til að sækja um.

Góður starfsandi einkennir fyrirtækið en við erum öflugur og samheldinn hópur með það markmið að umbreyta innheimtuþjónustu á Íslandi og stuðla að hugarfarsbreytingu gagnvart innheimtuferlinu hjá öllum sem það snertir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða greiðendur við úrlausn sinna mála
  • Samskipti og ráðgjöf við kröfuhafa
  • Símsvörun, tölvupóstur og netspjall
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði – í ræðu og riti
  • Góð tök á ensku
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hæfni og áhugi á mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og þjónustulund
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Morgunkaffi frá Brikk alla föstudaga
  • Vinnutími til kl 15:00 á föstudögum
  • Frábært samstarfsfólk 
Auglýsing stofnuð18. apríl 2024
Umsóknarfrestur18. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Laugavegur 182, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar