Snæfellsbær

Snæfellsbær

Störf hjá Snæfellsbæ
Snæfellsbær
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Snæfellsbær er fjölskylduvænn bær í náttúruparadís á Snæfellsnesi. Bæjarfélagið er um 680 ferkílómetrar að stærð og íbúar þess eru um 1700 talsins. Flestir búa í þéttbýliskjörnunum Ólafsvík, Rifi og Hellissandi, en aðrir íbúar eru dreifðir um sveitir þess, Fróðárhrepp, Breiðuvík og Staðarsveit, eða minni þéttbýliskjarna á Hellnum og Arnarstapa. Helstu atvinnuvegir í Snæfellsbæ eru sjávarútvegur, landbúnaður og ferðaþjónusta. Styrkum stoðum hefur verið rennt undir menntun með öflugu skólakerfi þar sem lögð er áhersla á metnaðarfullt og lifandi skólastarf og þá er skipulagt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni með besta móti. Í sveitarfélaginu er öflugur leikskóli, góður grunnskóli, frábær tónlistarskóli og fjölbrautaskóli í næsta nágrenni. Skólarnir í Snæfellsbæ hafa allir fengið Grænfánavottun og í þeim er unnið öflugt umhverfisstarf. Það sem einkennir Snæfellsbæ öðru fremur er hin stórbrotna náttúra sem hér er að finna og hefur ferðaþjónusta vaxið mjög í Snæfellsbæ á undanförnum árum, en Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull liggur m.a. að öllu leyti innan marka sveitarfélagsins og dregur að sér fjölmarga gesti ár hvert. Snæfellsbær er vottað umhverfisvænt sveitarfélag og hefur hlotið árlega vottun frá EarthCheck frá árinu 2008. Starfsemi bæjarins býður upp á mörg fjölbreytt og skemmtileg störf og hvetjum við áhugasama til að sækja um störf hjá Snæfellsbæ.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Klettsbúð 4, 360 Hellissandur
1700
Íbúafjöldi
Íbúafjöldi
Umhverfisvottað samfélag
Snæfellsbær er umhverfisvænt sveitarfélag og hefur hlotið vottun því til staðfestingar frá EarthCheck ásamt hinum sveitarfélögunum á Snæfellsnesi árlega frá 2008.
Samvinnurými
Snæfellsbær hefur opnað skrifstofurými sem hentar fullkomlega fyrir einstaklinga sem geta unnið án staðsetninga.

51-200

starfsmenn

Hreyfing

Starfsfólk hjá Snæfellsbæ á rétt á 27.500 kr. líkamsræktarstyrk ár hverju ári.

Samgöngur

Vegalendir í Snæfellsbæ eru ekki langar og því oftast stutt í vinnuna.

Heilsa

Í Snæfellsbæ er óspillt náttúra og hreint loft.

Húsnæði

Húsnæðisverð í Snæfellsbæ er töluvert hagstæðara en á höfuðborgarsvæðinu.

Vinnutími

Stytting vinnuvikunnar.

Nýjustu störfin

Engin störf í boði