Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Við tengjum heiminn í gegnum Ísland
Keflavíkurflugvöllur | Isavia
Um vinnustaðinn
Keflavíkurflugvöllur (KEF) er einn stærsti og líflegasti vinnustaður landsins. Hér mætast fólk, ferðalög og ótal verkefni alla daga ársins. Landsmenn stíga hér sín fyrstu skref í átt að nýjum ævintýrum og erlendir gestir hefja Íslandsdvöl sína eða halda áfram út í heim. KEF er fjölbreytt samfélag þar sem ólík störf og sérþekking koma saman. Sameiginlegt markmið okkar er að skapa góða upplifun og tryggja örugga og skilvirka þjónustu fyrir farþega, flugfélög og aðra sem eiga leið um flugvöllinn. Isavia sér um rekstur og þróun Keflavíkurflugvallar.

Jafnlaunavottun

Heimsmarkmiðin

Aðildarfélag Festu fyrir samfélagsábyrgð

Græn skref

Jafnvægisvog FKA

UN Global Compact

Keflavíkurflugvöllur
Jöfn tækifæri
Með jafnréttisstefnunni okkar tryggjum við að starfsfólk hafi jafna möguleika óháð kyni, þjóðerni, kynþætti, kynhneigð, aldurs og fleiri þátta.
Mannauðsstefna
Stefna okkar í mannauðs- og jafnréttismálum er að skapa gott starfsumhverfi þar sem starfsfólk er hvatt til að viðhalda gleðinni, vera hugrakt, uppbyggilegt og um leið að taka ábyrgð á eigin frammistöðu. Við náum árangri sem ein heild.

501-1000

starfsmenn

Hreyfing

Við bjóðum fastráðnu starfsfólki styrk til líkamsræktariðkunar

Matur

Við niðurgreiðum hádegismat fyrir starfsfólk

Skemmtun

Fyrirtækið og starfsmannafélagið, Staffið skipuleggja fjölda viðburða á ári hverju, m.a. glæsilega árshátíð, fjölskyldudag og jólahlaðborð

Þjálfun og starfsþróun
Hjá Isavia fer fram umfangsmikið og metnaðarfullt fræðslustarf. Þjálfun stærstu hópanna eins og flugverndarstarfsmanna, flugvallarstarfmanna og flugumferðastjóra fylgir þjálfunaráætlunum sem samþykktar eru af Samgöngustofu. Sérstök lög og reglur móta rekstrarumhverfi Isavia á sviði flugvallarekstur og flugleiðsöguþjónustu. Reglubundin þjálfun og endurmenntun eru hluti af daglegum störfum okkar starfsfólksins