Hótel Katla
Hótel Katla

Yfirmaður í veitingasal á Hótel Kötlu

Keahótel ehf. leitar að metnaðarfullum og þjónustuliprum yfirmanni í veitingasal á Hótel Kötlu við Vík í Mýrdal.

Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund og skipulagshæfileika til að ganga í lið með okkur og veita gestum framúrskarandi þjónustu.


Hótel Katla er staðsett við Vík í Mýrdal og er hluti af Keahótel hótelkeðjunni. Hótelið er glæsilegt 101 herbergja hótel og rekur góðan veitingasal og bar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegri starfsemi veitingastaðar og bars
  • Tryggja faglega og persónulega þjónustu við gesti
  • Birgðahald og pantanir fyrir bar í samráði við hótelstjóra
  • Stýring og þjálfun starfsfólks
  • Viðhalda góðum samskiptum milli eldhúss og veitingastaðar
  • Samskipti við gesti og úrlausn mála sem upp koma
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum nauðsynleg
  • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra starfsmenn til árangurs, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátta


Einungis reyklausir einstaklingar koma til greina.

Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur3. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Höfðabrekka lóð 1, 871 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.BirgðahaldPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar