
Yfirmaður hugbúnaðarþróunar Stafrænnar heilsu
Við leitum að kraftmiklum og framsæknum stjórnanda til að leiða starfsemi hugbúnaðarþróunar Stafrænnar heilsu í heilbrigðisráðuneytinu.
Um er að ræða þróun mikilvægra innviða heilbrigðiskerfisins og sérþróaðra lausna frá ytri aðilum sem styðja við starfsfólk heilbrigðisstofnana sem og sjúklinga og aðstandendur. Teymið sinnir framþróun þeirra í samvinnu við lykilnotendur í heilbrigðiskerfinu með það að leiðarljósi að auka skilvirkni, gæði og öryggi við veitingu heilbrigðisþjónustu. Gert er ráð fyrir að í teyminu muni starfa 15 - 20 starfsmenn.
Hjá Stafrænni heilsu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsinga- og heilbrigðistækni að margvíslegum og spennandi verkefnum. Markmið Stafrænnar heilsu er að leiða þróun og þjónustu stafrænnar heilbrigðisþjónustu á landsvísu og að veita framúrskarandi þjónustu við heilbrigðisstofnanir.
-
Leiða daglegt starf hugbúnaðarþróunarteymis með yfirsýn og ábyrgð á forgangsröðun og eftirfylgni verkefna teymisins og útdeilingu verkefna til starfsfólks teymisins í samræmi við ábyrgðarsvið og þekkingu.
-
Leiða þróun á ferlum hugbúnaðarþróunar og tryggja að unnið sé í samræmi við þá verkferla.
-
Leiða stefnumótun og framþróun teymisins, auka skilvirkni, öryggi og gæði þjónustu.
-
Stuðla að góðu samstarfi og samskiptum við opinberar heilbrigðisstofnanir, nýsköpunar- og upplýsingatækniaðila og aðra hagaðila.
-
Seta í leiðtogateymi Stafrænnar heilsu.
-
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar.
-
Farsæl stjórnunarreynsla á sviði hugbúnaðarþróunar er skilyrði.
-
Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
-
Reynsla af þróun tæknilausna á heilbrigðissviði er kostur.
-
Reynsla á vettvangi nýsköpunar er kostur.
-
Reynsla af innkaupum og samningagerð vegna hugbúnaðarþróunar er kostur.
-
Drifkraftur, stefnumótandi hugsun og frumkvæði í starfi.
-
Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja upp teymi.
-
Faglegur metnaður og öguð vinnubrögð.
-
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
Íslenska
Enska










