

Yfirlögfræðingur
Íslandsbanki leitar að metnaðarfullum yfirlögfræðingi.
Yfirlögfræðingur fer fyrir lögfræðiþjónustu Íslandsbanka og ber ábyrgð á lögfræðilegum málefnum bankans ásamt því að gegna lykilhlutverki í að styðja við áframhaldandi þróun traustrar og nútímalegrar bankaþjónustu. Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni til að leiða öfluga liðsheild, stuðla að góðum starfsanda og skapa vinnuumhverfi þar sem samvinna, framsækni og fagmennska fá að njóta sín. Jafnframt er mikilvægt að viðkomandi búi yfir sterkri samskiptafærni.
Lögfræðiþjónusta Íslandsbanka er hluti af nýstofnuðu sviði Stefnumótunar og menningar og heyrir yfirlögfræðingur undir framkvæmdastjóra sviðsins. Stofnun sviðsins endurspeglar áherslu á aukið samstarf stoðsviða bankans og markvissa mótun fyrirtækjamenningar. Í því samhengi gegnir yfirlögfræðingur mikilvægu hlutverki í samvinnu þvert á bankann.
- Meistarapróf eða embættispróf í lögfræði.
- Víðtæk og haldbær reynsla af lögfræðistörfum, helst innan fjármálageirans.
- Mjög góð þekking á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja.
- Hæfni til að vinna náið með stjórnendum og veita skýra og hagnýta lögfræðiráðgjöf.
- Skilningur á viðskiptum og geta til að tengja lögfræðiráðgjöf við rekstur og stefnu.
- Hæfni til að leiða teymi og vera drífandi í starfi.
- Sterk samskiptahæfni í faglegu samstarfi.
- Rík þjónustulund, frumkvæði í starfi og lausnamiðuð hugsun.
Enska
Íslenska






