Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Yfirflokkstjóri hjá Þjónustumiðstöð

Þjónustumiðstöð Kópavogs hefur umsjón með flestum verkefnum sem tengd eru framkvæmdum á bæjarlandi. Innan þjónustumiðstöðvar eru verkefni sem tengjast snjómokstri, garðyrkju, gatnaviðhaldi, vatns- og fráveitu, sorphirðumálum og önnur þjónusta við íbúa, fyrirtæki og stofnanir.

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar nú að yfirflokkstjóra í fjölbreytt og skemmtilegt sumarstarf. Um er að ræða 100% starf á tímabilinu 12. maí - 15. ágúst 2025.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur verkefni í samráði við yfirmenn garðyrkjudeildar og ber ábyrgð á verkefnum vinnuflokka við garðyrkju
  • Ber ábyrgð á skilum vinnutíma frá flokkstjórum
  • Hefur umsjón ásamt flokkstjórum með verkfærum sem vinnuhópar nota
  • Aðstoðar flokkstjóra við úrvinnslu verkefna og umsjón með starfsmönnum
  • Önnur verkefni sem falin eru af yfirmanni og falla að starfssviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur skulu vera 24 ára eða eldri
  • Reynsla af stjórnun eða sambærilegum störfum æskileg
  • Ökuréttindi skilyrði
  • Stundvísi og góð mæting skilyrði
  • Lipurð í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta æskileg
Auglýsing birt7. febrúar 2025
Umsóknarfrestur1. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Askalind 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar