Vopnafjarðarskóli
Vopnafjarðarskóli
Vopnafjarðarskóli

Vopnafjarðarskóli auglýsir lausar kennarastöður skólaárið 2026-2027

Við leitum að kennurum í eftirtaldar stöður:

· Íþróttakennara

· Umsjónarkennara á yngsta og/eða miðstigi.

· Verkgreinakennara, textílmennt og hönnun og smíði

Um að ræða 80-100% stöður.

Í skólanum eru um 80 nemendur. Skólastarf Vopnafjarðarskóla hefur það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Gildi skólans er virðing, ábyrgð og vellíðan. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og unnið er eftir uppeldisstefnu sem nefnist jákvæður agi. Mikil áhersla er á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks með samstarf og samvinnu að leiðarljósi.

Menntunar- og hæfniskröfur

·        Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)

·        Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni

·        Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

·        Ábyrgð og stundvísi

·        Reynsla af teymiskennslu æskileg

·        Góð íslenskukunnátta

Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Lónabraut 16, 690 Vopnafjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Kennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar