Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

List- og verkgreinakennari við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri

Auglýsum 80-100% stöðu smíða- og hönnunarkennara við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES), frá og með skólaárinu 2026-2027.

Við skólann eru tvær starfsstöðvar þar sem nemendur yngra stigs eru á Stokkseyri og nemendur eldra stigs á Eyrarbakka. Við skólann eru 136 nemendur, 70 á yngra stigi og 66 á eldra stigi. Sérstaða skólans felst í einstaklingsmiðaðri kennslu og skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu. Mikil áhersla er lögð á góð samskipti og góða samvinnu við nærumhverfið. BES leitast við að vera teymiskennslu og teymisvinnuskóli og er jafnframt í þróunarvinnu sem miðar m.a. að því að innleiða Jákvæðan aga í skólastarfið. BES er Erasmus+ skóli, vinnur skv. heilsueflandi gildum og vinnur markvisst gegn einelti. Þá er BES virkur þátttakandi í Lærdómssamfélagi Árborgar og í öflugu samstarfi við aðra grunnskóla í Árborg.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
  • Heldur utan um nám- og kennslu í viðkomandi list- og verknámi
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Reynsla af kennslu í list- og verkgreinum er kostur
  • Reynsla af teymiskennslu/vinnu í grunnskóla er kostur
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi og metnaður fyrir að starfa með börnum og ungmennum
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Háeyrarvellir 56, 820 Eyrarbakki
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar