KLAK - Icelandic Startups
KLAK - Icelandic Startups
KLAK - Icelandic Startups

Viltu koma íslenskri nýsköpun á framfæri?

KLAK – Icelandic Startups leitar að öflugum markaðsstjóra sem vill efla sýnileika íslenskrar nýsköpunar og hjálpa okkur að ná til næstu kynslóðar frumkvöðla.

Markaðsstjóri ber ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum KLAK í samráði við framkvæmdastjóra. Í starfinu felst að efla vörumerki KLAK og sýnileika verkefna þess, miðla árangri starfsins og tryggja skýra og samræmda framsetningu á starfsemi og þjónustu félagsins.

Markaðsstjóri vinnur náið með framkvæmdastjóra og verkefnastjórum og er í samskiptum við frumkvöðla, bakhjarla og aðra samstarfsaðila KLAK.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun, skipulagning og framkvæmd markaðsáætlana fyrir KLAK og einstök verkefni þess.

  • Skipulagning og framkvæmd markaðsherferða til að kynna umsóknartímabil, þjónustu og viðburði.

  • Umsjón með stafrænni markaðssetningu og auglýsingum.

  • Umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum KLAK, þar á meðal efnissköpun, birtingar og uppfærsla upplýsinga.

  • Uppbygging vörumerkis KLAK og umsjón með ásýnd og kynningarefni.

  • Fréttaskrif, gerð fréttatilkynninga og samskipti við fjölmiðla.

  • Greining og mat á árangri markaðsaðgerða og tillögur að úrbótum.

  • Aðkoma að undirbúningi, kynningu og framkvæmd viðburða í samstarfi við verkefnastjóra.

  • Samstarf við bakhjarla og aðra samstarfsaðila um kynningar og sýnileika.

Menntun, reynsla og hæfni

  • Háskólamenntun í markaðsfræði, viðskiptafræði, almannatengslum eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af markaðs- og kynningarmálum, gerð markaðsáætlana og framkvæmd herferða.

  • Góð þekking og reynsla af stafrænni markaðssetningu, samfélagsmiðlum og auglýsingakerfum.

  • Reynsla af efnissköpun og færni í að miðla upplýsingum á skýran og áhugaverðan hátt.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og framúrskarandi ritfærni.

  • Greiningarhæfni og færni til að nýta gögn við mat á árangri og ákvarðanatöku.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks að sameiginlegum markmiðum.

  • Sjálfstæði, skipulagshæfni og geta til að fylgja verkefnum frá hugmynd til framkvæmdar.

  • Sköpunargleði, drifkraftur og frumkvæði.

  • Góð tæknifærni og geta til að tileinka sér ný verkfæri og kerfi.

  • Áhugi á nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Þekking á íslensku nýsköpunarumhverfi er kostur.

Af hverju KLAK?

Við bjóðum fjölbreytt og skapandi starf í samhentu teymi í Grósku. Hjá KLAK færðu tækifæri til að móta markaðsstarfið, vinna með frumkvöðlum og öflugu tengslaneti og sjá árangur starfsins í nýjum hugmyndum og vaxandi fyrirtækjum.

KLAK styður frumkvöðla frá hugmynd að vexti með viðskiptahröðlum, fræðslu, mentorastuðningi og innlendu og alþjóðlegu tengslaneti.

Auglýsing birt27. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bjargargata 1, 102 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AsanaPathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.CanvaPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Email markaðssetningPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Leitarvélabestun (SEO)PathCreated with Sketch.MailchimpPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skilgreining markhópaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TikTokPathCreated with Sketch.VefsíðugerðPathCreated with Sketch.VefumsjónPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.VörumerkjastjórnunPathCreated with Sketch.WordPress
Starfsgreinar
Starfsmerkingar