
Vilt þú vinna við eldvarnaeftirlit og forvarnir?
Um er að ræða framtíðarstörf við eldvarnaeftirlit og forvarnir á starfssvæði slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Meginhluti starfsins felur í sér skoðanir á byggingum og lóðum auk skráningar og gagnavinnu.
Við leitum að einstaklingum með góða færni í mannlegum samskiptum og getu til að vinna með öðrum, jafnframt því að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi sínu.
· Eldvarnaskoðanir á mannvirkjum og lóðum þeirra.
· Öryggis- og lokaúttektir mannvirkja í samstafi við byggingarfulltrúa.
· Skýrslugerð og gagnaöflun.
· Kröfugerð, eftirfylgni og eftirlit með framvindu úrbóta á eldvörnum.
· Samskipti við eldvarnafulltrúa, byggingarfulltrúa og aðra málsaðila.
· Almenn leiðsögn og stuðningur varðandi brunavarnir.
· Hafa lokið 32 einingum í byggingartækni að loknu sveinsprófi eða háskólamenntun sem nýtist í starfi eða lokið námi sem atvinnuslökkviliðsmaður.
· Áhugi á eldvörnum og öryggismálum.
· Góð almenn tölvufærni.
· Góð íslenskukunnátta. Kunnátta á fleiri tungumálum kostur.
· Hafa gild ökuréttindi.
Enska
Íslenska