

Vilt þú starfa í vörumóttöku Distica?
Distica óskar eftir að ráða til sín liðsfélaga í vörumóttöku félagsins. Um er að ræða gott tækifæri til að starfa hjá traustu fyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á vörum fyrir heilbrigðismarkað. Distica rekur fjögur vöruhús sem öll eru staðsett í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Móttaka á sendingum
- Móttökuskoðanir
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Þátttaka í umbótastarfi vinnusvæðisins og deildarinnar
- Önnur tilfallandi störf innan vinnusvæðisins og vöruhúsanna
Ef þú...
- hefur menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af sambærilegu starfi.
- býrð yfir framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- sýnir dugnað í verki, ert stundvís og hefur getu til að starfa í hóp.
- hefur góða tölvukunnáttu.
- hefur gott vald á íslensku og ensku.
- hefur hreint sakavottorð.
... þá gætum við verið að leita af þér!
Farið verður yfir umsóknir jafnóðum.
Umsóknarfrestur er til og með 9. október 2025
Stefna Distica er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika meðal starfsfólks og hvetjum við einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um. Tekið er við umsóknum hér, í gegnum ráðningarvef Distica. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Viktor Grímur Vilhelmsson í [email protected]
Auglýsing birt30. september 2025
Umsóknarfrestur9. október 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniNákvæmniStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)

Lager
Bílanaust

Meiraprófbílstjóri í vörudreifingu á höfuðborgarsvæðinu og út á land
Fraktlausnir ehf.

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - 50% starfshlutfall
DHL Express Iceland ehf

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík
DHL Express Iceland ehf

Starf á útilager - Outside warehouse/inventory worker
Einingaverksmiðjan

Liðsfélagi á lager
Marel