

Við leitum að starfsfólki í tímavinnu/hlutastarf
Regnboginn leikskóli leitar að hressu og áhugasömu starfsfólki í tímavinnu. Starfið hentar vel með námi eða fyrir þau sem leita að hlutastarfi.
Regnboginn er 3ja deilda, sjálfstætt starfandi leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík.
Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og mál og læsi.
Í Regnboganum starfar öflugur hópur starfsfólks sem er samheldinn, skemmtilegur og jákvæður. Rík áhersla er á að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnustaðamenningu.
Í síðustu starfsánægjukönnun svaraði allt starfsfólk því að þau myndu mæla með Regnboganum sem vinnustað!
Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Guðmundsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected]
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og stundvísi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Mjög góð íslenskukunnátta
Íslenska










