

Við leitum að sérfræðing í viðskiptaþróun⚡️
Orkugeirinn er á hraðri uppleið og tækifærin til að efla starfsemi okkar hafa aldrei verið fleiri. Við leitum að drífandi sérfræðingi í viðskiptaþróun sem vill taka þátt í að móta framtíð fyrirtækisins, byggja upp verðmæt viðskiptasambönd og finna ný tækifæri á ört vaxandi markaði.
Við erum að styrkja teymi viðskiptaþróunar og leitum að skipulögðum og drífandi einstaklingi sem vill taka þátt í vexti og þróun fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem viðkomandi kemur að tilboðsgerð, verkefnaöflun, innkaupum og samskiptum við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila.
Sérfræðingur í viðskiptaþróun gegnir lykilhlutverki í að styðja við sölu- og þróunarverkefni fyrirtækisins. Starfið felur meðal annars í sér undirbúning og eftirfylgni tilboða, söfnun og greiningu gagna vegna útboða og verkefna, stuðning við sölustýringu og verðlagningu, auk þátttöku í uppbyggingu og viðhaldi sterkra viðskiptasambanda. Viðkomandi vinnur náið með öðrum deildum fyrirtækisins og tekur virkan þátt í að þróa ferla, skapa ný tækifæri og styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins.
- Aðstoð við tilboðsgerð og eftirfylgni tilboða
- Söfnun gagna og undirbúningur vegna útboða og verkefna
- Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
- Aðstoð við innkaup á búnaði, efni og þjónustu
- Eftirfylgni með samningum og afhendingum
- Þátttaka í undirbúningi kynninga og heimsókna til viðskiptavina
- Stuðningur við sölustýringu og verðlagningu
- Skráning og utanumhald upplýsinga í kerfum
- Samvinna við aðrar deildir og þátttaka í „handover“ ferlum verkefna
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af tilboðsgerð, innkaupum eða verkefnastjórnun er kostur
- Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar.
- Ensku og íslenskukunnátta er krafa
- Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri.
- Sjálfstæði í starfi og leiðtogahæfni.
- Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund við allar aðstæður.
- Mjög rík öryggisvitund
- Vandað og öruggt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
- Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Íþróttastyrkur
- Árlegar heilsufarsmælingar
Íslenska
Enska



