
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Verkstjóri verkstæðis í Hafnarfirði
Klettur leitar að verkstjóra til að stýra öflugu teymi á þjónustuverkstæði í Hafnarfirði. Verkstjóri sér um daglega starfsmannastjórnun á verkstæði og úthlutun verkefna. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í nýrri fyrirmyndaraðstöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stýring verkefna á verkstæði í samráði við verkstæðismóttöku
- Úrlausn flóknari verkefna á þjónustuverkstæði í samráði við tæknistjóra
- Þátttaka í áætlanagerð og afkomumælingum á þjónustuverkstæði
- Útbúa áætlun um þjálfun starfsmanna í samráði við yfirmenn
- Sjá um viðeigandi kynningu og þjálfun nýrra starfsmanna
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgild réttindi bifvélavirkja/vélvirkja
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Stjórnunarhæfileikar og rík þjónustulund
- Áhugi á símenntun í greininni
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegisverður.
- Afsláttur af vörum félagsins.
- Íþróttastyrkur.
- Virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt10. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Einhella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)

Starfsmaður á smurstöð
Klettur - sala og þjónusta ehf

Reyndur maður í viðgerðum á lyfturum, skotbómulyfturum og minni tækjum á vélaverkstæði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
Klettur - sala og þjónusta ehf

Sölustjóri CAT Lyftara og vöruhúsalausna
Klettur - sala og þjónusta ehf
Sambærileg störf (12)

Framtíðarstarf á verkstæði á Akureyri
Þór hf

Verkefnisstjóri verkstaðar (Site Administrator)
Samherji Fiskeldi

Umsjónarmaður flutninga (Logistic Coordinator)
Samherji Fiskeldi

Framrúðuskipti
Bílaumboðið Askja

Verkstjóri tengivirkjateymis
Landsnet hf.

Bifvélavirki
Fagurverk

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Vélvirki á verkstæði
Rúko hf

Bifvélavirki óskast / Mechanic wanted.
Icerental4x4

Bifvélavirki / Car Mechanic
Bílvogur bifreiðaverkstæði

Sumarstarfsfólk óskast á Grundartanga
HRT þjónusta ehf.

Aðstoðarmaður á skrifstofu og bifreiðaverkstæði
Bílaverkstæðið Fram ehf