HS Veitur hf
HS Veitur hf
HS Veitur hf

Verkstjóri veitukerfis í Vestmannaeyjum

HS Veitur leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf verkstjóra veitukerfa í Vestmannaeyjum.

HS-veitur reka vatns-, hita og rafveitu í Vestmannaeyjum ásamt varmadælustöð og kyndistöð til framleiðslu á heitu vatni.

Verkstjóri ber ábyrgð á stjórnun framkvæmdaflokka, umsjón með viðgerðum og daglegum rekstri, viðhaldsverkefnum og nýframkvæmdum veitukerfa í Vestmannaeyjum. Verkstjóri vinnur náið með rekstrarstjóra að hagkvæmum og öruggum rekstri dreifiveitunnar og góðri þjónustu við viðskiptavini á veitusvæðinu.

Viðkomandi þarf að hafa góða stjórnunar- og samskiptahæfileika og kunnáttu til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og stuðningur við starfsfólk framkvæmdaflokka
  • Skipulagning rekstrar, nýframkvæmda, viðgerða og viðhaldsverkefna
  • Aðgerðastjórn vegna bilana eða vegna framkvæmda í veitukerfi
  • Tryggja öryggi á verkstað og að öryggisstöðlum sé fylgt
  • Samskipti og eftirfylgni vegna verka sem unninn eru af ytri verktökum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Stjórnunar reynsla og leiðtogahæfileikar
  • Áhugi á að byggja upp og viðhalda góðri öryggismenningu
  • Þjónustulund, samskiptahæfni og skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi
Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tangagata 1, 900 Vestmannaeyjar
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar