HH hús
HH hús

Verkstjóri - smíðaverkefni

HH Hús er öflugt byggingafyrirtæki stofnað árið 2003. Félagið sérhæfir sig í viðhaldi og endurbótum, meðal annars fyrir sveitarfélög, tryggingafélög og stærri fyrirtæki.

HH Hús er ört vaxandi félag og því leitum við að reyndum smið fyrir tryggingaverkefni. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir einstakling með góða samskiptahæfni, metnað og sjálfstæð vinnubrögð.

Viðkomandi mun stýra verkefnum frá upphafi til verkloka og gegna lykilhlutverki í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila.

Við leggjum mikla áherslu á fagmennsku, gæði og góðan starfsanda í jákvæðu og traustu vinnuumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Smíðaverkefni og endurbætur vegna tryggingartjóna

  • Samskipti við tjónþola, tryggingafélög og samstarfsaðila

  • Verkstjórn og úthlutun verkefna

  • Eftirlit með gæðum, framvindu og verklokum

  • Tjónamat, skýrslugerð og uppgjör í MEPS tjónamat- og uppgjörskerfi

  • Önnur tilfallandi störf

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af smíða- og endurbótaverkefnum eftir tjón

  • Sveins- eða meistarapróf í húsasmíði er kostur

  • Reynsla af verkstjórn er kostur

  • Góð tæknikunnátta og skipulagshæfni

  • Mjög góð samskiptahæfni og þjónustulund

  • Vandvirkni, áreiðanleiki og stundvísi

Fríðindi í starfi
  • Samkeppnishæf laun

  • Bíl til umráða

  • Fjölbreytt og sjálfstætt starf

  • Gott og hvetjandi starfsumhverfi

  • Öflugt teymi og jákvæðan starfsanda

  • Tækifæri til að taka virkan þátt í vaxandi fyrirtæki

Auglýsing birt10. janúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Stangarhylur 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HúsasmíðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SmíðarPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar