

Verkstjóri í framkvæmdadeild
Óskað er eftir verkstjóra framkvæmdadeildar fyrirtækisins. Helstu verkefni verkstjóra eru að stýra útlagningar og viðgerðarflokkum deildarinnar, umsjón með framkvæmdum, starfsmannahald, samskipti við þjónustuaðila og viðskiptavini. Verkstjóri ásamt deildarstjóra ber faglega ábyrgð á starfi og verkefnum deildarinnar.
Spennandi og krefjandi starf í rótgrónu og framsæknu fyrirtæki þar sem gæða-, öryggis- og umhverfismál eru höfð að leiðarljósi í öllum störfum félagsins.
Leitað er eftir jákvæðum og öflugum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt starf innan fyrirtækisins.
Ábyrgð á útlagningaflokkum
Þátttaka í áætlanagerð deildarinnar
Forysta og hvatning starfsmanna deildarinnar
Samskipti við verkkaupa, verktaka, eftirlitsaðila og þjónustuaðila
Þátttaka í virku gæða og öryggiskerfi fyrirtækisins
Menntun sem nýtist í starfi t.d. vinnuvélaréttindi, meirapróf, iðn eða tæknimenntun. Reynsla í starfi t.d. mannvirkjagerð og góð tæknikunnátta getur þó bætt upp fyrir skort á formlegri menntun.
Áhugi, drifkraftur, frumkvæði ásamt metnaði til að ná árangri
Mjög góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
Marktæk stjórnunarreynsla í sambærilegu starfi er skilyrði
Leiðtoga og skipulagshæfileikar
Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti
Enska
Íslenska









