Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið

Skrifstofustjóri á skrifstofu nýsköpunar og þróunar

Laus er staða skrifstofustjóra á skrifstofu nýsköpunar og þróunar á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.

Skrifstofustjóri stýrir skrifstofu nýsköpunar og þróunar á skóla- og frístundasviði.

Skrifstofa nýsköpunar og þróunar ber ábyrgð á nýsköpun í skóla- og frístundastarfi, stuðlar að samstarfi við háskóla og menningarstofnanir og veitir ráðgjöf um alþjóðasamstarf og styrkjamál. Hún sameinar m.a. sérfræðinga á sviði jafnréttismála, barnamenningar, listfræðslu, skólasafna og alþjóðasamstarfs. Skólahljómsveitir Reykjavíkur heyra undir skrifstofu nýsköpunar og þróunar.

Skrifstofan styður við notkun stafrænnar tækni í námi og kennslu með fræðslu, ráðgjöf og aðgangi að sköpunar- og tæknismiðju og kennslugögnum. Hún veitir jafnframt stuðning, ráðgjöf og fræðslu varðandi málþroska, læsi og fjölmenningu.

Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og skólahljómsveita Reykjavíkurborgar. Skóla- og frístundasvið þjónustar yfir 22 þúsund börn og fjölskyldur þeirra en á sviðinu starfa um 6000 manns. Skrifstofustjóri situr í framkvæmdastjórn sviðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á faglegri forystu og verkstjórn á skrifstofu nýsköpunar og þróunar.
  • Vinna að faglegri stefnumótun Reykjavíkurborgar í skóla- og frístundastarfi í samvinnu við fulltrúa skóla- og frístundaráðs og taka þátt í gerð starfsáætlunar skóla- og frístundasviðs.
  • Stýrir og heldur utan um innleiðingu menntastefnu borgarinnar og styður starfsfólk leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva við innleiðingu.
  • Stuðla að samhæfingu sameiginlegra verkefna í nýsköpunar og þróunarmálum í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi.
  • Samstarf við háskóla og fagfélög hérlendis og erlendis um símenntun og starfsþróun starfsmanna skóla- og frístundasviðs í samstarfi við fagskrifstofu og mannauðsþjónustu.
  • Vinna í náinni samvinnu við skrifstofustjóra fagskrifstofu.
  • Stuðla að því, í samstarfi við aðra starfsemi sviðsins að rannsóknir á sviði skóla- og frístundamála fari fram í Reykjavík og að niðurstöður þeirra verði nýttar til að auka gæði starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða á sviði uppeldis- og kennslufræði, tómstunda- og félagsmálafræði, félagsvísinda eða sambærileg menntun
  • Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar, stjórnunar eða sambærilegs
  • Víðtæk og farsæl starfs- og stjórnunarreynsla
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, þrautseigja og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og mikil reynsla í teymisvinnu
  • Þekking og reynsla af alþjóðlegu samstarfi
  • Reynsla af gerð alþjóðlegra og innlendra styrkumsókna er kostur.
  • Góð íslensku kunnátta C1og enskukunnátta B2 skv. evrópskum tungumálaramma. Kunnátta í norrænu máli er kostur
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrkur, menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamningur
  • Gott mötuneyti
Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar