

Vélvirki
Ertu með brennandi áhuga á öflugum vélum og vilt starfa þar sem tæknin er í fyrirrúmi? Við hjá Kletti leitum að drífandi og lausnamiðuðum vélvirkja til að styrkja okkar öfluga teymi. Ef þú hefur gaman af því að sökkva þér ofan í flókna tækni og vilt vinna með heimsþekkt vörumerki eins og Scania, Caterpillar, Finlay og Merlo, þá er þetta starfið fyrir þig!
Hjá okkur færðu ekki bara vinnu, heldur tækifæri til að verða sérfræðingur á þínu sviði í fyrirmyndar vinnuumhverfi þar sem öryggi og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Við bjóðum upp á fjölbreytt verkefni þar sem engir tveir dagar þurfa að vera eins:
- Sérhæfð viðgerðarþjónusta: Viðhald og viðgerðir á vélum, gírkössum, drifum, rafstöðvum, lyfturum ofl
- Tæknileg bilanagreining: Notkun greiningartækja til að finna og leysa áskoranir í rafmagns- og vélbúnaði.
- Gæði og nákvæmni: Framfylgja þjónustu stöðlum Kletts og öryggis- og brunareglugerðum.
- Símenntun: Þú munt sækja námskeið hjá okkar helstu birgjum erlendis og innanlands til að vera alltaf með nýjustu þekkinguna á hreinu.
Hvað þarft þú að hafa?
- Fullgild réttindi sem vélvirki.
- Kunnátta til að fara með bilanagreina, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri er kostur.
- Góða tungumálakunnáttu (íslensku og/eða ensku) til að geta nýtt þér handbækur og leiðbeiningar.
- Ríka þjónustulund og hæfni til að vinna vel í nánu samstarfi við vinnufélagana.
Af hverju Klettur?
Við vitum að starfsfólkið er okkar mikilvægasta auðlind. Þess vegna bjóðum við upp á:
- Mat og drykk: Niðurgreiddar máltíðir í flottu mötuneyti.
- Heilsa og félagslíf: Virkt starfsmannafélag og íþróttastyrk svo þú getir haldið þér í formi.
- Fríðindi: Góðan afslátt af gæðavörum og þjónustu fyrirtækisins.
- Sérfræðiþekkingu: Einstakt tækifæri til að þróast í starfi með námskeiðum hjá fremstu framleiðendum heims.
Klettur er leiðandi í sölu og þjónustu vörubíla, vinnuvéla og hjólbarða. Hjá Kletti vinna rúmlega 150 manns við þjónustu og sölu á meðal annars Scania, Caterpillar, Finlay og Merlo tækjum og vélum, IR loftpressum og Goodyear hjólbörðum. Hjá Kletti er mikið lagt upp úr menntun starfsmanna. Til að mynda njóta starfsmenn verkstæðisins símenntunar sem er fólgin í fjölda námskeiða hjá helstu birgjum félagsins
Upplýsingar um starfið veitir Baldur Þorgeirsson Þjónustustjóri [email protected]
Íslenska
Enska










