
Ístak hf
Við erum framsækið verktakafyrirtæki þar sem framkvæmdagleði er í fyrirrúmi. Við veitum ávallt bestu þjónustu sem völ er á og leggjum metnað í að uppfylla kröfur viðskiptavina okkar. Við önnumst verkefni á borð við byggingar, virkjanir, álversframkvæmdir og hafnarframkvæmdir auk vega- og brúargerðar.
Hjá Ístaki starfa hátt á fimmta hundrað manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis. Við leggjum mikið upp úr góðu og sveigjanlegu starfsumhverfi fyrir starfsfólkið okkar og styðjum vel við öflugt starfsmannafélag.
Kynntu þér störf í boði eða leggðu inn almenna umsókn.

Vélamenn og bílstjórar
Ístak leitar að vélamönnum og bílstjórum til að vinna á verkum Ístaks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórn stórra vinnuvéla eftir verklýsingum við það verk sem unnið er hverju sinni.
- Dagleg umhirða tækja s.s. smurning og þrif.
- Skráning vinnu á verk og tíma á tæki.
- Önnur verkefni á vinnustað sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vinnuvélaréttindi á stórar vinnuvélar, meirapróf skilyrði.
- Reynsla af stjórnun stórra vinnuvéla skilyrði.
- Önnur starfsreynsla í byggingariðnaði kostur.
Auglýsing birt8. apríl 2025
Umsóknarfrestur7. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bugðufljót 19, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustulipur bílstjóri óskast til aksturs fyrir fatlaða og eldri borgara
Teitur

Corporate Services Officer
British Embassy Reykjavik

Meiraprófsbílstjóri í áætlanaakstri
Eimskip

Technical Operations Specialist
Hefring Marine

Helper
Þórsgrjót ehf.

Lagerstarfsmaður og útkeyrsla
Skakkiturn ehf

Kranamaður/ Crane operator
ÁB Lyfting

Verka- og vélamenn
Garðlist ehf

Útkeyrsla / lager
Icetransport

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Vinna á dælubíl / Pump truck operator
Stíflutækni

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk ehf.