
Íþróttahús Kópavogsbæjar
Kópavogsbær rekur sex íþróttahús sem notuð eru bæði fyrir skólaíþróttir og íþróttastarf. Þau eru staðsett í Digranesi, Fagralundi, Kársnesskóla, Kópavogsskóla, Lindaskóla og Vatnsendaskóla. Ásamt íþróttahúsunum rekur Kópavogsbær einnig skíðamiðstöð Kópavogs í Bláfjöllum sem og Kópavogsvöll sem er notaður bæði af íþróttafélögunum og er opin almenningi.

Vaktstjóri óskast í íþróttahús Lindaskóla
Lindaskóli er heildstæður grunnskóli fyrir börn frá 1. – 10. bekk og er staðsettur við Núpalind 7. Vaktstjóri óskast í íþróttahús skólans sem þjónar nemendum á skólatíma en er í notkun íþróttafélaga og í útleigu á kvöldin og um helgar.
Vaktstjóri annast gæslu og eftirlit í íþróttahúsinu og er ætlað að aðstoða og leiðbeina notendum mannvirkisins og sjá um að umgengnisreglur séu virtar. Jafnframt ber vaktstjóri ábyrgð á daglegum rekstri í íþróttahúsinu og annast ráðningar starfsfólks í samráði við íþróttadeild Kópavogsbæjar, sem og skipulag og mönnun vakta. Unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vaktstjóri er verkstjóri í íþróttahúsinu og sér um að manna vaktir
- Annast ráðningar starfsfólks í íþróttahúsið í samráði við íþróttadeild ásamt frágang á launaskýrslum til launadeildar
- Gerir skýrslur um starfsemi íþróttahússins samkvæmt ákvörðun íþróttadeildar
- Tekur vel á móti gestum íþróttamannvirkis, aðstoðar þá og leiðbeinir
- Hefur eftirlit með húsum, húsbúnaði og íþróttasvæðum
- Annast afgreiðslu, gæslu, baðvörslu og ræstingu
- Annast stundarþrif í íþróttasal, í klefum og á göngum eftir þörfum
- Annast viðhaldsvinnu eftir því sem við verður komið
- Miðlar upplýsingum frá gestum um það sem betur má fara í aðstöðunni
- Veitir upplýsingar og hefur samskipti við skóla, íþróttafélög, leigutaka og aðra þá sem kunna að nota húsið
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem forstöðumaður eða íþróttadeild fela vaktstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Æskilegt er að starfsmaður hafi stúdentspróf eða sambærilegt nám
- Almenn tölvukunnátta
- Færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Styttri vinnuvika
Auglýsing birt2. júní 2025
Umsóknarfrestur16. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar