Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Tvær stöður þjónustufulltrúa hjá lögreglustjóranum á höfuðbo

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og metnaðarfullu starfsfólki í tvær stöður þjónustufulltrúa. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt störf í þjónustudeild sem heyrir undir stjórnsýslu- og þjónustusvið embættisins.

Þjónustudeild sinnir margvíslegri þjónustu þvert á embættið og starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Þá heyra málefni tengd skjalastjórnun, leyfisveitingum, stafrænni þróun auk annarra umbótaverkefna undir þjónustudeild.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir öll alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 500 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sinna fjölbreyttum verkefnum tengdum þjónustu við innri og ytri aðila. Upplýsingamiðlun og ráðgjöf, símsvörun, móttaka erinda, skráningar og miðlun upplýsinga innan og utan embættisins. Ritun, ljósritun, flokkun, afhending og frágangur mála. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf og/eða góð reynsla sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
  • Sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Aðlögunarhæfni og jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að miða upplýsingum í rituðu og töluðu máli
  • Mjög góð almenn tölvufærni

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni. 

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Auglýsing birt2. maí 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hverfisgata 113-115 115R, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar