

Sölusnillingur óskast í frábært teymi notaðra bíla
Við hjá Heklu leitum að jákvæðum, metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi til að starfa með okkur í söludeild notaðra bíla.
Opnunartími er eftirfarandi:
mánudaga - fimmtudaga: 10:00-17:00
föstudaga 10:00-16:15
laugardaga og sunnudaga 12:00-16:00
Markmið Heklu er að bjóða ávallt framúrskarandi þjónustu og gegna söluráðgjafar okkar þar lykilhlutverki.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Sala á notuðum bílum og ráðgjöf til viðskiptavina
Móttaka, skráning og framsetning sölubifreiða á sölusvæði og vefmiðlum
Tilboðsgerð og eftirfylgni
Samskipti við viðskiptavini
Byggja upp og viðhalda góðum viðskiptasamböndum
Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum sem eru hluti af daglegum rekstri söludeildar
Reynsla af sölustörfum er kostur, sérstaklega á bílamarkaði
Þekking og áhugi á bílum
Framúrskarandi söluhæfileikar
Rík þjónustulund og frumkvæði
Gild ökuréttindi
Jákvæðni og góð samskiparfærni
Góð íslensku- og enskukunnátta
Menntun sem nýtist í starfi
Hjá Heklu starfar samhentur hópur fólks. Við bjóðum upp á frábært mötuneyti. Íþróttastyrk ásamt árlegum heilsufarsmælingum. Starfsfólk nýtur afsláttarkjara á vörum og þjónustu fyrirtækisins.













