
Tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Vestmannaeyjabær leitar að metnaðarfullum starfsmanni í stöðu tómstunda, íþrótta- og forvarnarfulltrúa.
Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á málaflokki tómstunda-, íþrótta- og forvarnarmála og hefur bæði menntun og reynslu sem nýtist til þess að skapa framtíðarsýn sem snýr að þessum málum.
Starfið felur í sér umsjón með málaflokki tómstunda-, íþrótta- og forvarnarmála í samráði við sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs og fylgja eftir stefnu sveitarstjórnar varðandi þau mál. Starfsmaður sér um stjórnun, áætlanagerð, rekstur og samhæfingu á starfsemi tómstunda-, íþrótta- og forvarnarmála í samstarfi við yfirmann. Viðkomandi ber ábyrgð á fjármunum. Starfið felur í sér stefnumörkum fyrir starfsemina, þróun, samræmingu og daglega stjórnun á þjónustu sveitarfélagsins á sviði tómstunda, íþrótta og forvarna með áherslu á öfluga þjónustu fyrir íbúa á öllum aldri. Starfsmaður er hluti af stjórnendateymi fjölskyldu- og fræðslusviðs.
- Helstu verkefni sem heyra undir starfsmann eru m.a. félagsmiðstöð unglinga, sumarúrræði barna, lengd viðvera fyrir fötluð börn og ungmenni, sumarúrræði fyrir fötluð börn og ungmenni, Vinnuskóli Vestmannaeyja, frístundastyrkur, Ungmennaráð, forvarnar- og lýðheilsuverkefni, samstarf við íþróttafélög og félagasamtök og þróun fjölbreyttra tómstundaúrræða fyrir íbúa á öllum aldri.
- Tekur þátt í þverfaglegu starfi innan fjölskyldu- og fræðslusviðs að markmiðum samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna.
- Háskólamenntun á sviði uppeldis- og/eða tómstundafræða eða aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af stjórnun og rekstri er kostur.
- Þekking og reynsla að vinna með tómstundastarf.
- Þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga og viðeigandi lögum.
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, frumkvæði og leikni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til stefnumótunar, breytingastjórnunar og árangursstjórnunar.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 (samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
Íslenska

