Eskifjarðaskóli
Eskifjarðaskóli
Eskifjarðaskóli

Þroskaþjálfi óskast við Eskifjarðarskóla

Við Eskifjarðarskóla er laus staða þroskaþjálfa, um er að ræða 100% starf. Ráðið er í starfið til eins árs frá og með 1. ágúst 2026 með möguleika á framtíðar ráðningu.

Í Eskifjarðarskóla eru 140 nemendur í 1. til 10. bekk, áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, vellíðan nemenda og góð samskipti. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingum sem eru tilbúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks. Í skólanum eru einnig til húsa tónlistarskólinn,og bókasafn bæjarins.

Einkunnarorð skólans eru: Áræði, færni, virðing og þekking.

Lögð er áhersla á skemmtilegt og skapandi skólastarf, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans grunnesk.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, bekkjaráætlunum og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.
  • Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, þroskaþjálfa, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.
  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila.
  • Annast þjálfun og fræðslu um fatlanir og þroskafrávik til stuðningsfulltrúa og annarra starfsmanna skólans.
  • Veitir foreldrum fatlaðra nemenda ráðgjöf og leiðbeiningar er lýtur að fötlun nemenda.
  • Fræðir nemendur skólans um þroskafrávik og fatlanir eftir því sem við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í þroskaþjálfun eða sambærileg menntun
  • Framhaldsmenntun er æskileg en ekki skilyrði.
  • Góð tungumálakunnátta, íslenska og enska.
  • Þekking á kennslu- og uppeldisfræði
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Hreint sakavottorð
  • Þekking og kunnátta á helstu upplýsingakerfi 
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eskifjörður , 735 Eskifjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar